Hamraborg 10, 200 Kópavogi.  Sími  554-4414 
 Tryggvagötu 28, 101 Reykjavík. Sími 552-5005 


Ath. 2 stofur og 2 símanúmer.
Hringið á þann stað sem þið viljið koma á.






 

 

 

 

 

soleymerki  
 Íslenskar snyrtivörur  

 

 

 


 

        

 

       




      Gleðilegt sumar.
                                                                                                                                                                                                                  
                                                                    Alhliða snyrting fyrir konur og karla.
     
Upphafssíða
Fótaaðgerðir
Andlitsmeðferðir
Ýmsar snyrtimeðh.
Líkamsmeðferðir
Snyrtivörur
Verðlisti
Starfsfólk
 

Gjafakort í snyrtingu.
Ef þú villt gleðja einhvern sem þú þekkir er gjafakort í snyrtingu notaleg gjöf.
Sumargjöf, afmælisgjöf eða tækifærisgjöf er  góð gjöf fyrir þann sem þér þykir vænt um.
Þú getur valið meðferð eða gefið fyrir ákveðna upphæð.

Tilvalin gjöf  fyrir afa og ömmu eða pabba og mömmu.
Vinsælt er að gefa gjafakort í fótsnyrtingu eða andlitsbað.
Ef þú villt gefa einhverjum algjört dekur er lúxus dekurdagur efst á óskalistanum.

Gjafakortin eru í fallegum gjafapokum.
Þú getur komið og keypt gjafakort í Hamraborg eða Tryggvagötu
og gildir kortið á báðum stöðum.
Verið velkomin.

Opnunartími
Opið í Hamraborg frá kl. 8 -17 alla virka daga. (Opið til 18 eftir pöntunum.)
Tryggvagata opið frá 9 - 17 alla virka daga.

Laugardagar opið eftir pöntunum.
Pantið tímanlega ef þið viljið koma á laugardegi.

Nimue nýjar meðferðarvörur í Hamraborginni.
Þessar vörur innihalda ávaxtasýrur og hjálpa húðinni til að leiðrétta
ýmis húðvandamál, t.d. þura húð, húð með litablettum, feita húð og viðkvæma.
Þessar vörur eru einungis seldar og notaðar af snyrtifræðingum á snyrtistofum.
Komdu við í Hamraborginni og fáðu faglegar ráðleggingar varðandi húðina.

Hamraborg 10, Kópavogi. 
Við erum upp á annari hæð í Hamraborg 10, inngangur til okkar er á suðurhlið húsnæðisins.
Við erum við hliðina á Landsbankanum og Heilsugæslunni.
Við erum með alla almenna snyrtiþjónustu,
litun, vaxmeðferð, andlitsböð, húðhreinsun, handsnyrtingu, fótsnyrtingu, rafmagnsháreyðingu og förðun.  Einnig erum við með hljóðbylgjutæki frá Ella Bache, bæði fyrir andlit og líkama, sem
eykur blóðflæði og er mjög endurnýjandi og styrkjandi fyrir húðina.  Hljóðbylgjur fyrir líkamann eru bólgueyðandi og bæta sogæðakerfi líkamans og eru þar af leiðandi mjög góðar fyrir þá sem eru með bjúg og bólgna fætur eða celluliti.   
Einnig bjóðum við upp á fótaaðgerðir fyrir þá sem eru með fótavandamál t.d. líkþorn, inngrónar táneglur eða önnur vandamál. Góður árangur er af spangarmeðferð fyrir inngrónar táneglur.
Opnunartími í Hamraborginni er frá kl. 8 - 17 virka daga, og á laugardögum eftir pöntunum. Tímapantanir í Hamraborginni í síma 554-4414.

Í nóvember 2005 opnuðum við nýja snyrtistofu að Tryggvagötu 28, í 101 Reykjavík.
Snyrtistofan er í húsnæði Radisson BLU 1919 hótelsins (gamla Eimskipafélagshúsið)
við hliðina á Hársnyrtistofunni  Senter.
Inngangur á snyrtistofuna er Tryggvagötumegin gengt Tollhúsinu.
Í Tryggvagötunni erum við með alla almenna snyrtingu og fótaaðgerðir.
Við leggjum áherslu á notalegar
Kanebo og la prairie andlitsmeðferðir,
og seljum við kanebo og snyrtivörur frá Sóley.
Við höfum opið frá kl. 9.00 í Tryggvagötunni til kl. 17.00 á virkum dögum.
Tímapantanir á Tryggvagötuna eru í síma 552-5005.

   Sjá fleiri meðferðir á verðlista.

Sagan
Snyrtistofan Jóna var stofnsett 30. apríl 1983.  Snyrtistofan var fyrst staðsett á Skeggjagötu 2 í Reykjavík.  Árið 1987 flutti Snyrtistofan að Laugavegi 163 og árið 1994 flutti Snyrtistofan í Hamraborg 10, Kópavogi. Í október 2004 opnaði snyrtistofan lítið útibú í snyrtivörudeild Debenhams, en hætti rekstri þar ári seinna.  5. nóvember 2005 opnuðum við nýja snyrtistofu í Tryggvagötu 28 í Reykjavík.  Eigandi snyrtistofunnar er Jónína Hallgrímsdóttir.

Upphafssíða | Fótaaðgerðir | Andlitsmeðferðir | Ýmsar snyrtimeðh. | Líkamsmeðferðir | Snyrtivörur | Verðlisti | Starfsfólk

Síðan var uppfærð 20.  apríl  2012.